|
Skipulagsdagar veturinn 2010-2011 |
|
|
|
|
föstudagur, 03 september 2010 10:36 |
|
Hér að neðan má sjá þá daga sem leikskólinn verður lokaður vegna skipulagsdaga starfsfólks í vetur:
24. september skipulagsdagur allan daginn.
26. október skipulagsdagur hálfan daginn. Leikskólinn lokar kl. 12.15.
26. nóvember skipulagsdagur hálfan daginn. Leikskólinn lokar kl. 12.15.
18. febrúar, skipulagsdagur hálfan daginn. Leikskólinn lokar kl. 12.15.
15. mars, skipulagsdagur hálfan daginn. Leikskólinn lokar kl. 12.15.
26. apríl, skipulagsdagur allan daginn.
13. maí, skipulagsdagur allan daginn.
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 05 ágúst 2010 10:47 |
|
Á haustin eru alltaf einhverjar breytingar í starfsmannahópnum og verður engin undantekning frá því þetta árið.
Hanna Stína hefur kvatt okkur en hún ætlar að fara í nám í vetur og svo mun Kristján kveðja okkur í lok ágúst en hann ætlar að halda áfram í námi sínu til leikskólakennara. Við færum þeim bestu þakkir fyrir gott samstarf.
Tveir starfsmenn bætast við hópinn í ágúst en það eru þær Viktoría Unnur Viktorsdóttir grunnskólakennari og Anna Björg Guðmundsdóttir leikskólakennari. Þær verða að vinna á Hulduheimum. Viktoría og Anna Björg eru báðar heimavanar í Fífuborg því þær unnu hér áður til fjölda ára. Við bjóðum þær velkomnar til starfa 
Í byrjun september kemur Guðrún Freyja svo aftur til starfa úr fæðingarorlofi. |
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 16 júní 2010 13:48 |
|
Í dag tókum við forskot á þjóðhátíðardaginn með hátíðahöldum í Fífuborg. Skreyttur garðurinn tók á móti börnunum þegar þau komu í leikskólann og að skrúðgöngu lokinni var boðið upp á ýmis skemmtileg tilboð s.s. dósakast, hjólbörurallý, andlitsmálningu, pokahlaup og fleira. Skemmtuninni lauk svo með grilluðum pylsum og ís.
Fleiri myndir má sjá í myndasafninu

|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 10 |