Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Velkomin aftur í leikskólann Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 05 ágúst 2009 10:08

Kæru börn og foreldrar.  Leikskólinn hefur nú aftur opnað eftir sumarlokun.  Við vonum að allir hafi haft það gott í fríinu sínu og komi endurnærð aftur til leiks og starfa með okkur.

altHlökkum til að sjá ykkur öll.

Kveðja frá starfsfólki Fífuborgar.

 
Brúðubíllinn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 02 júlí 2009 12:15

Þriðjudaginn 7. júlí klukkan 10 verður farið að sjá sýningu brúðubílsins á leikvellinum við Fróðengi.  Við leggjum af stað um kl. 9:30.  Gott væri ef þau börn sem hyggjast fara í ferðina væru komin fyrir þann tíma.

 

 
Þjóðhátíð Fífuborgar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 12 júní 2009 16:42

Þriðjudaginn 16. júní ætla börn og starfsfólk að halda þjóðhátíð Fífuborgar. Dagskrá dagsins er eftirfarandi:

 
       08.00-09.00         Morgunverður. Morgunkorn, Kringlur.
         09.00- 09.30        Frjáls leikur
         09.30- 10.00        Samvera
        
         10.00- 12.00       Skrúðganga með fána og söng.
                                      Leikir í garði s.s. hjólböru rallý, pokahlaup,leikur með fallhlíf o.fl.
                                      Andlitsmálun.
                                      Grillaðar pylsur og vínber.
    
Gaman væri að þau börn sem eiga íslenska fánann kæmu með hann í leikskólann þennan dag til að
hafa í skrúðgöngunni.

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 5 af 10

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fífuborg | Fífurima 13 | 112 Reykjavík | s: 587 4515 | Póstur | Viðburðir | Fréttir