|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 18 nóvember 2008 11:55 |
|
Mánudaginn 17. nóvember kom 4. bekkur C Rimaskóla í heimsókn til okkar í tilefni Dags íslenskrar tungu sem var 16. nóvember. Þau sungu og lásu fyrir okkur í salnum og einnig söng hver deild fyrir þau. Að lokum sungu allir saman lagið "Á íslensku má alltaf finna svar". Þetta var reglulega skemmtileg stund sem við áttum með stóru krökkunum og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna. Myndir af viðburðinum má sjá hér á heimasíðunni. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 24 september 2008 18:18 |
|
Kæru foreldrar. Nú er komið haust og veður misjöfn. Það er áberandi hvað vantar mikið í töskur barnanna og því viljum við biðja ykkur að huga vel að útifatnaði barna ykkar. Mikilvægt er að hafa stígvél, pollagalla, húfur, vettlinga, hlýja peysu og úlpu. Einnig viljum við biðja ykkur að vera samstíga okkur í því að leyfa börnunum ykkar ekki að leika sér á svörtu stólunum í fataklefanum. Þetta eru stólar fyrir fullorðna og eru hættulegir börnunum ef þau eru að leika sér á þeim.
|
|
Hvað við gerðum í dag á Ljósheimum |
|
|
|
|
Fréttir frá Ljósheimum
|
|
fimmtudagur, 28 ágúst 2008 14:46 |
|
Í dag ákváðum við að taka okkur frí frá útiverunni og prófa að gera eitthvað annað. Sumir völdu að mála, aðrir völdu að vera í könnunarleik og einhverjir völdu að vera í kubbaleik. Var þetta rólegur og notalegur morgun hjá okkur. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 8 af 10 |