Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Æfing í Holtinu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 16:01

Ljósheimar nýttu sér góða veðrið í vikunni og fóru í gönguferð í Holtið okkar. Það er heilmikil áskorun fyrir stutta fætur að komast yfir þúfur og steina en börnin stóðu sig öll með prýði og skemmtu sér vel! Fleiri myndir má sjá á myndasíðunni

Það getur verið erfitt að klöngrast yfir stokka og steina!  

 

 
Velheppnuð vika að baki! Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 07 maí 2010 15:13

Það er óhætt að segja að það hafi tekist vel til að bjóða foreldrum að koma í heimsókn í leikskólann og eyða tíma með börnum sínum.

Fjölmargir foreldrar komu og prófuðu að vera með í hinum og þessum viðburðum í dagskipulaginu. Það var farið í gönguferð, útiveru, hreyfistund, tónlistarstund, vinastund og margt fleira!

Foreldrar voru mjög ánægðir með að fá þetta tækifæri og þökkum við þeim kærlega fyrir jákvæð viðbrögð og vonumst til að sjá enn fleiri þegar við bjóðum upp á opna viku næst!

Myndir frá vikunni má sjá á myndasíðunni.

Sungið fyrir afmælisbörn vikunnar í vinastund  
Í vinastund er sungið fyrir afmælisbörn liðinnar viku  

 

 
Skráning á vali Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 04 maí 2010 14:27

Nú er sumarið á næsta leyti og hefur útivera aukist mikið í valinu hjá börnunum. Við höfum því ákveðið að fella niður skráningu á vali frá og með mánudeginum 10. maí

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 10

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fífuborg | Fífurima 13 | 112 Reykjavík | s: 587 4515 | Póstur | Viðburðir | Fréttir