Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Glatt á hjalla við hópaslit Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 30 apríl 2010 12:53

Nú hafa farið fram hópaslit hjá öllum hópum með skemmtunum þar sem börnin buðu fjölskyldum sínum upp á skemmtiatriði í sal. Í morgun sýndu þau svo hvoru öðru atriðin sín og er meðfylgjandi mynd tekin þá. Fleiri myndir frá vinastundinni má finna í myndasafninu.

 Ljósheimar sungu um litina fyrir okkur
 Hérna má sjá Ljósheimabörnin syngja

 

 
Allir saman í Heiðmörk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 30 apríl 2010 08:20

Stjórn foreldrafélagsins hefur ákveðið að þetta árið verði farið í Heiðmörk í stað þess að fara í sveitaferð. Farið verður laugardaginn 29. maí og er áætlað að hittast kl. 11.00-13.00.

Nánari upplýsingar munu berast þegar nær dregur

 
Sumarlokun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 10 febrúar 2010 00:00

Leikskólinn verður lokaður frá og með mánudeginum 19. júlí og opnar hann aftur miðvikudaginn 4. ágúst. Öll börn þurfa að taka samfellt sumarleyfi í fjórar vikur. Nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti til foreldra.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 10

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fífuborg | Fífurima 13 | 112 Reykjavík | s: 587 4515 | Póstur | Viðburðir | Fréttir