|
|
Valið
Til að ná markmiðum leikskólans leggjum við áherslu á að börnin fái tækifæri til að velja sér verkefni sjálf.
Þess vegna er höfuðáhersla lögð á valkerfi í leikskólastarfinu.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Það er að ýmsu að huga varðandi klæðnað og annan útbúnað sem börnin þurfa...... |
|
Lesa meira...
|
|
Barninu fylgt inn á deild |
|
|
|
|
Það eru vinsamleg tilmæli að börnunum sé alltaf fylgt inn á deild þegar þau koma í leikskólann, þar sem starfsmenn taka á móti þeim og víst er að þau eru komin í öruggar hendur. Á sama hátt er nauðsynlegt að láta starfsmenn deildar vita þegar börn eru sótt.
|
|
Gerður er vistunarsamningur um vistunartíma barns í leikskólanum. Sá vistunartími sem er í vistunarsamningi er sá tími sem barnið getur dvalið í leikskólanum dag hvern. Nauðsynlegt er að þessi tími sé virtur því vinnutími starfsmanna er miðaður út frá vistunartíma barna.
Komi í ljós að breyta þurfi um vistunartíma þurfa foreldrar að óska eftir því á þar til gerðum eyðublöðum. Breytingar á vistunartíma miðast við mánaðamót.
Uppsögn á leikskólaplássi þarf að gera skriflega með eins mánaða fyrirvara og miðast við mánaðamót.
|
Þegar afmæli er mega börnin koma með ávexti eða grænmeti til að bjóða deildinni sinni. Hver deild sér svo um að gera daginn eftirminnilegan fyrir barnið. Það fær að gera kórónu, vera umsjónarmaður, velja fyrst og fl. Á föstudögum, í vinastund er svo sungið fyrir þau börn sem hafa átt afmæli í vikunni.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 2 |