Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fréttir frá Hulduheimum 30 júni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 30 júní 2010 15:33

Komið þið sæl, loksins smá fréttir,  En margt búið að gerast. Bæjarferðir gengu vel sem og náttúruskólinn, nú erum við að kenna hinum börnunum á leikskólanum leikina sem við lærðum þar.   Síðan er nú bara  búið að vera svo yndislegt veður að það er búið að vera mikil útivera og börnin rosalega dugleg að velja sér út, en að sjálfsögðu er alltaf innisvæði í boði líka.

við höfum verið að æfa okkur í málörvun, hlusta eftir hljóði í orðum, eins og heyrist  "s" í amma, eins að setja saman orð " penni og veski" verður pennaveski,  en við höldum áfram með þetta á fullu í haust markvisst.

En nú fer að líða að líða að því að starfsfólk fari í sumarfrí og hefjast þau strax á mánudaginn 5 júli , þá fer Guðný í sumarfrí og kemur aftur 4 ágúst.   

settum nokkrar myndir inn á síðuna og einnig eru myndir undir allar deildir, ef þið voruð ekki búin að sjá þær.

Bestu sumarkveðjur og hafið það rosa gott í sumar

KV       Guðný og Marta

 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fífuborg | Fífurima 13 | 112 Reykjavík | s: 587 4515 | Póstur | Viðburðir | Fréttir