|
|
|
| fimmtudagur, 01 júlí 2010 10:39 | |||
|
![]() Vikan 21. -25. júní 2010 á Tröllheimum
Á mánudeginum fórum við á Árbæjarsafnið. Þar tók leiðsögukona í peysufötum á móti okkur og leiddi okkur um safnið. Fyrst fórum við á sýninguna „Komdu að leika“ en þar eru leikföng frá ýmsum tímum og það besta er – það má leika með þau. Börnin duttu strax inn í skemmtilegan leik og kynntust þannig leikföngum fyrri tíma. Við skoðuðum líka gamla lest og líkan af miklum bruna sem varð í Reykjavík og slökkvivagninum sem var notaður þá, en þá voru ekki til slökkvibílar eins og í dag. Við borðuðum svo úti á meðan við lékum okkur með gamaldags kassabíla, stultur og fleira skemmtilegt.
Á þriðjudaginn var val fyrir og eftir hádegi. Alex Þór kom með ölkelduvatn í leikskólann. Hann útskýrði hvernig það væri öðruvísi en venjulegt vatn og svo fengu allir að smakka. Flestum fannst það nú frekar skrýtið og einn strákurinn lýsti því vel þegar hann sagði að það væri eins og súrt járn á bragðið. Bjartur Máni var með kveðjuveisluna sína og bauð upp á girnilega ávexti.
Á miðvikudaginn vorum við boðin heim til Júlíusar Arnar að leika í garðinum og í grillaðar pylsur. Júlíus Örn og fjölskylda tóku afskaplega vel á móti okkur og það var margt skemmtilegt til að leika með úti í garðinum og ekki spillti veðrið fyrir!
Á fimmtudaginn féll íþróttadagurinn niður en í staðinn var ýmis hreyfing í boði í garðinum s.s. hástökk, kastalaklifur og fleira.
Á föstudaginn var val fyrir og eftir hádegi að vanda. Einnig var kosið um hvert ætti að fara í síðustu ferð Tröllheima en það er umbunarferð sem börnin hafa unnið sér fyrir með góðri hegðun í ferðunum. Allir gátu komið með tillögu og svo var kosið. Úlfársdalurinn fékk flest atkvæði og þangað munum við fara í næstu viku.
|