|
|
|
| fimmtudagur, 01 júlí 2010 10:42 | |
|
![]() Vikan 28. júní-2. júlí 2010 á Tröllheimum
Á mánudaginn átti umbunarferðin í Úlfársdalinn að vera en því varð ekki viðkomið vegna manneklu. Í staðinn var val fyrir og eftir hádegi.
Á þriðjudaginn komumst við í ferðina í Úlfársdalinn. Við gengum framhjá Dalskóla sem hann Viktor Örn mun fara í en það var ekki hægt að skoða hann þar sem það er ennþá verið að vinna í honum. Þaðan héldum við í nýja húsið hans Viktors Arnar þar sem tekið var vel á móti okkur með eplabitum og kanilsnúðum. Við fengum að leika okkur á trampólíni í garðinum og svo í móanum sem er bara upp við húsið. Þar fundum við t.d. gæsaeggjaskurn, glitrandi steina og rabbaragarð. Þetta var mjög skemmtileg og vel heppnuð lokaferð á Tröllheimum.
Á miðvikudaginn var komið að síðasta leikskóladeginum hjá Örnu Katrínu og Sigurdísi Sjöfn. Þær koma með gómsæta ávexti og svo var kveðjuveisla sem var svo vegleg að við fengum líka ávexti í eftirrétt eftir hádegismatinn! Val fyrir og eftir hádegi.
Á fimmtudaginn spunnust nokkrar umræður um hvað við fáum góðan mat hérna á Fífuborg og hvað konurnar í eldhúsinu eru alltaf góðar að smyrja nesti fyrir okkur í ferðirnar og elda hádegismatinn fyrir okkur í kaffitímanum. Börnin stungu upp á að skrifa þeim þakkarbréf sem við og gerðum. Öll börnin skrifuðu undir og svo var bréfið fagurlega skreytt og afhent þeim Laufeyju og Unu Hlín – sem elda svo góðan og hollan mat fyrir okkur.
Á föstudaginn var val fyrir og eftir hádegi.
Þessa dagana erum við að meta starfið á Tröllheimum, hvað gekk vel og hvað mætti betur fara. Liður í því er stutt skrifleg og nafnlaus könnun sem við biðjum foreldra að svara. Einnig fáum við mat frá börnunum og starfsmönnum.
Núna fer að líða að lokun Tröllheima þar sem sumarleyfi eru byrjuð og bæði börnum og starfsfólki í húsi farið að fækka. Þannig eru engar lengri ferðir á dagskrá en í staðinn verða gönguferðir í boði í vali og fleira skemmtilegt eftir því sem veður og aðstæður leyfa.
|