| Velkomin í leikskólann |
|
|
|
|
Velkomin í leikskólann Fífuborg. Þegar barn byrjar í leikskóla er að mörgu að huga. Til að barnið öðlist öryggi á fyrstu dögum sínum í leikskólanum förum við eftir sérstakri aðlögunaráætlun. En auðvitað miðum við líka hverja aðlögun eftir einstaklingnum. Sum börn þurfa til að mynda oft lengri tíma í aðlögun en áætlunin okkar segir til um. Hér er aðlögunaráætlun okkar hér á Fífuborg: Aðlögun barna í heildagsvistun: 1 dagur. Foreldri og barn koma í heimsókn í 1 klst. kl. 10:15 - 11:15. 2. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 11:00. Foreldri fer frá stutta stund. Boðið er uppá morgunverð. 3. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 12:30. Foreldri gefi sér tíma með barninu og fer síðan frá stutta stund. Barnið fær morgunverð og hádegismat. 4. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 14:00. Foreldri gefi sér tíma með barninu og fer síðan frá. Barnið fær morgunverð, hádegismat og fer í hvíld eða sögustund. 5. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 15:30. Barnið fær morgunverð, hádegismat og síðdegishressingu. 6. og 7. dagur. Aðlögunarinnar skulu foreldrar ekki gera ráð fyrir fullum vistunartíma. Við leggjum áherslu á að foreldrar kveðji börnin áður en þeir fara frá þeim.
Aðlögun barna í fimm og sex tíma vistun. 1 dagur. Foreldri og barn koma í heimsókn kl. 10:15 - 11:15. 2. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 10:30. Foreldri fer frá stutta stund. Boðið er uppá morgunverð. 3. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 11:30. Foreldri gefi sér tíma með barninu þegar það kemur en kveður síðan. Barnið fær morgunverð. 4. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 13:00. Foreldri gefi sér tíma með barninu og fer síðan frá. Barnið fær morgunverð og hádegismat. 5. dagur. Foreldri og barn koma kl. 8:30 - 13:30. Barnið fær morgunverð og hádegismat. 6. og 7. dagur. Aðlögunarinnar skulu foreldrar ekki gera ráð fyrir fullum vistunartíma. Við leggjum áherslu á að foreldrar kveðji börnin áður en þeir fara frá þeim
|