Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Starfsmannamál Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 05 ágúst 2010 10:47

Á haustin eru alltaf einhverjar breytingar í starfsmannahópnum og verður engin undantekning frá því þetta árið.

Hanna Stína hefur kvatt okkur en hún ætlar að fara í nám í vetur og svo mun Kristján kveðja okkur í lok ágúst en hann ætlar að halda áfram í námi sínu til leikskólakennara. Við færum þeim bestu þakkir fyrir gott samstarf.

Tveir starfsmenn bætast við hópinn í ágúst en það eru þær Viktoría Unnur Viktorsdóttir grunnskólakennari og Anna Björg Guðmundsdóttir leikskólakennari. Þær verða að vinna á Hulduheimum. Viktoría og Anna Björg eru báðar heimavanar í Fífuborg því þær unnu hér áður til fjölda ára. Við bjóðum þær velkomnar til starfa

Í byrjun september kemur Guðrún Freyja svo aftur til starfa úr fæðingarorlofi.

 
Hæ, hó jibbíjei! Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 16 júní 2010 13:48

Í dag tókum við forskot á þjóðhátíðardaginn með hátíðahöldum í Fífuborg. Skreyttur garðurinn tók á móti börnunum þegar þau komu í leikskólann og að skrúðgöngu lokinni var boðið upp á ýmis skemmtileg tilboð s.s. dósakast, hjólbörurallý, andlitsmálningu, pokahlaup og fleira. Skemmtuninni lauk svo með grilluðum pylsum og ís.

Fleiri myndir má sjá í myndasafninu

Í skrúðgöngunni var sungið hátt og snjallt

 
Starfsmannamál Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 07 maí 2010 15:24

Mánudaginn 10. maí kemur Kristján aftur til starfa og fer hann á Tröllheima til að byrja með. Hann verður hjá okkur í sumar en mun svo snúa aftur í skólann í lok ágúst.

Þriðjudaginn 11. maí byrjar Sunna á Álfheimum. Sunna er að útskriftast sem leikskólakennari í júní.

Við bjóðum bæði Kristján og Sunnu velkomin til starfa

Við viljum líka nota tækifærið og þakka Ingibjörgu fyrir samveruna í vetur en hún mun hætta þriðjudaginn 11. maí.

 
Glatt á hjalla við hópaslit Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 30 apríl 2010 12:53

Nú hafa farið fram hópaslit hjá öllum hópum með skemmtunum þar sem börnin buðu fjölskyldum sínum upp á skemmtiatriði í sal. Í morgun sýndu þau svo hvoru öðru atriðin sín og er meðfylgjandi mynd tekin þá. Fleiri myndir frá vinastundinni má finna í myndasafninu.

 Ljósheimar sungu um litina fyrir okkur
 Hérna má sjá Ljósheimabörnin syngja

 

 
Sumarlokun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 10 febrúar 2010 00:00

Leikskólinn verður lokaður frá og með mánudeginum 19. júlí og opnar hann aftur miðvikudaginn 4. ágúst. Öll börn þurfa að taka samfellt sumarleyfi í fjórar vikur. Nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti til foreldra.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 5

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fífuborg | Fífurima 13 | 112 Reykjavík | s: 587 4515 | Póstur | Viðburðir | Fréttir